Skilmálar – boel-is

Skilmálar

Skilmálar Verslun/ Netverslun

 

Skilmálann staðfestir kaupandi með staðfestingu á kaupum.
 

Seljandi er Betra og betra efh verslunin BÓEL Fiskislóð 81 2h, 101 Reykjavík s.834-1809 Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.boel.is


Skilmálar þessir gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á vefversluninni, boel.is og versluninni BÓEL Fiskislóð 81 2 h,

skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Til þess að tryggja rétt bæði kaupanda sem og seljanda höfum við að leiðarljósi lög um réttindi, persónuvernd og rafræn viðskipti (lög nr. 77/2000, nr. 30/2002 og nr. 48/2003). 
 

Almennt

Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Ef fram kemur fleiri en ein vara á mynd telst söluvara sú sem fram kemur í vöruheiti eða lýsingu. BÓELáskilur sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. 
 

Verð 

Öll verð í netversluninni geta breyst án fyrirvara. Það verð gildir sem kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni. Heildarkostnaður við kaup á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun. Hann inniheldur allan kostnað við pöntun s.s. þjónustu, sendingargjald og fl. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. 

 

Pöntun vöru

Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæði boel.is telst hún bindandi milli aðila. Kaupandi fær pöntunarstaðfestingu senda á netfang sem gefið var upp við pöntun. Kaupandi er hvattur til þess að kanna sérstaklega hvort að pöntunarstaðfesting hafi borist frá seljanda og hvort hún sé í samræmi við pöntun hans. 

 

Greiðsla 

Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa) og millifærslu. Kortagreiðslur fara fram í gegnum örugga afgreiðslu Valitor ehf. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.

Varan er eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarrétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist seljanda. 
 

Afhending vöru 

Í boði er að sækja vörurnar í verslun okkar við Óðinsgötu. Þær verða annars sendar með pósti ef ekki koma fyrirmæli um annað.  Ef vara er ekki sótt innan 30 daga áskilur seljandi sér rétt til þess að selja vöruna. 

Sé varan að fara í póstsendingu leitast seljandi við að afhenda vöruna 1-4 daga frá því að pöntun berst.  Kaupandi fær tölvupóst eða sms þegar varan hefur verið send af stað.

Pöntun er send á viðkomandi kaupanda með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Sendingarkostnaður er skv. gjaldskrá Íslandspósts. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður BÓEL hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma.

Ef keypt er fyrir meira en 15.000kr kostar seljandi flutningskostnað heim með Íslandspósti. 

Sendingargjald: Ef verslað er fyrir kr. 15000- er sendigargjald greitt af seljanda, sótt í verslun kr. 0-, sótt í pósthús kr. 980, í pósthús kr. 780

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur 

Hafi kaupandi keypt vöruna í gegnum boel.is hefur kaupandi 14 daga til að hætta við kaup á vöru.Vörur keyptar á útsölu er ekki hægt að skila. Neytandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar sbr. 4. mgr. 22.þ.e að vera í fullkomnu lagi, ónotuð með bæði framleiðslu- og verðmiða. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhend skráðum móttakanda. Óski viðskiptavinur eftir að skila vöru skal hann tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins. Skal viðskiptavinur senda tölvuskeyti á boel@boel.is eða senda í póstskeyti staðlað uppsagnareyðublað sem finna má á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is en þar er jafnframt hægt að finna frekari upplýsingar um skilarétt. Betra og betra ehf ehf sendir viðskiptavin kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar og viðurkenningu og þar með skapast inneign hjá félaginu aðeins ef kvittun fyrir kaupunum fylgir með. Upphæð inneignar skal vera sú sem kemur fram á pöntunarstaðfestingu þó eru flutnings- og póstburðargjöld ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vörur sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavöru séu þær sendar með póstkröfu.

 

*Hvað varðar rýrnun á verðgildi vöru gildir 4.mgr.22.gr. laga nr. 16/2016 í Neytendalögum: "Neytandi skal vera ábyrgur fyrir rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar.  Neytandi skal ekki undir neinum kringumstæðum vera ábyrgur fyrir rýrnun á verðgildi vöru ef seljandi hefur ekki tilkynnt honum um réttinn til að falla frá samningi í samræmi við g-lið 1.mgr.5gr."

Galli 

Ef vara er gölluð eða að það vantar í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturkalla kaupa. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.  Ábyrgð er ekki staðfest nema pöntunarstaðfestingu og kvittun fyrir kaupum sé framvísað. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Ábyrgð fellur jafnframt niður ef rekja má bilun til rangrar meðferðar á vöru.  Hægt er að senda póst á boel@boel.is til að tilkynna galla á vöru.

Betra&betra ehf vill benda á á neðangreinda stofnun þar sem kaupandi getur leitað aðstoðar við hugsanleg mál sem kunna að koma upp. 

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa

Borgartún 21, 105 Rvk.

www.kvth.is

Trúnaður 

Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang. Betra&betra ehf heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 

 

Höfundarréttur

Allt efni á vefsvæði boel.is er eign boel.is eða eign birgja sem auglýsa og selja vörur sinar á vefsvæðinu. 

 

Lögsaga og varnarþing 

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjaness. 
 

Upplýsingar um seljanda 

Nafn: Betra&betra ehf verslunin BÓEL Heimilisfang: Óðinsgata 1, 101 Reykjavík, sími 8341809. Netfang boel@boel.is, kt. 500718-1020, vsk númer: 132326. Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.